Skólinn!
31.10.2006 17:24:20 / johanna

Eplaballið..

 

 



Ég nenni ekki að blogga þótt það sé langt síðan. Mig langar bara að segja tvennt.

Nú er mælirinn fullur! ÉG ÞOLI EKKI STRÆTÓ! Það tekur mig helvítis 50 mínútur að komst heim til mín eftir skóla :( Svo eru alltaf allir farnir heim þegar ég er búin í skólanum þar sem ég er með svo ömurlega stundatöflu.:( Því ætla ég að auglýsa hér með eftir einkabílsstjóra sem nennir að keyra mig heim ;) Endilega hafa samband :D er oftast búin í skólanum 15:40 ;)

Svo langaði mig bara að segja hvað það verður skemmtilegt á fimmtudaginn :D:D Því þá er EPLABALLIÐ :D:D Þá verður sko stuð :D:D:D Ekki satt Kristín? ;) Get ekki beðið :D:D


» 4 hafa sagt sína skoðun

16.09.2006 18:44:30 / johanna

Helgin..

Jæja helgin er komin sem er fínt, busaballið var á fimmtudaginn...Hef farið á skemmtilegri böll! Mig langaði bara að skella þessum myndum inná sem ég sá á 4-R síðunni ;) Málið að skella sér í bæinn í kvöld? Kíkja kannski í eitthvað partý ;)

Adios ;)


» 7 hafa sagt sína skoðun

07.09.2006 22:09:42 / johanna

Skólinn..

Ég veit ég veit, ég er ekki alveg að standa mig en núna kemur bloggið sem allir hafa verið að bíða eftir ;) Ég er ekki alveg að nenna að halda uppi þessari síðu. :/ Það kemur bara í ljós hvað ég verð dugleg að skrifa inná hana. Það er helst á svona stundum sem ég á að vera að gera eitthvað annað en vera í tölvunni, þá nennir maður að blogga.

Sem sagt sumarið er búið og við tók haustið. Skólinn byrjaður og ég stoppa ekki. Sumarið var æðislegt og var einhvern eigin á þennan hátt:

·               Bostonferðin í maí sem verður seint gleymd.

·               Var farin að halda að ég yrði atvinnulaus í sumar en fékk þá þessa skemmtilegu vinnu í The Shoe Studio. Vann ALLT of mikið, ætla ekki að vinna svona mikið næsta sumar. Var að vinna allar helgar sem leiddi til þess að ég fór ekki í eina einustu útilegu sem var frekar lélegt :S

·               Ef ég var ekki að vinna sem kom sjaldan fyrir þá var ég með vinunum eða kaupa mér eitthvað. Þetta sumar eyddi ég miklu þannig að ég var ekkert rík eftir sumarið þótt ég hafi unnið mikið :S Ekki nógu gott fyrir komandi vetur.

·               Í ágúst fór ég svo til Mallorca sem var góður endir á ágætu sumri. Þar kynntist ég skemmtilegu fólki og hafði það gott. Lá í sólbaði á ströndinni eða í sundlaugargarðinum. Myndirnar sem koma vonandi bráðum tala sínu máli.

Skólinn er byrjaður á fullu. Tvær vikur liðnar og ég er að kafna í lærdóm, hef engan veginn tíma fyrir þetta. Ég er búin að vera að vinna í Shoe Studio seinustu helgar og verð þar í vetur. Seinustu helgi hitti ég Hófí og Hlín og við elduðum þessa dýrindismáltíð. Mikið spjallað og svo skelltum við okkur í Salapartý í Skeifunni eða réttara sagt fyrir utan það, þar sem það var búið að loka :/

Ég ætla að láta þetta gott heita þar sem ég er nú bara að blogga fyrir hana Ragnheiði mína. Hún verður að fá að vita hvað er að frétta þar sem hún er farin til Frakklands :’( Er strax farin að sakna hennar ekkert smá :( Vil líka vekja athygli á síðunni hennar http://ragnheiðurb.bloggar.is þar sem hún segir frá skemmtilega lífinu í Frakkalandi :D. En þangað til næst Au Revoir ;)

Ég í Palma



Ég og Sjöfn :D
Ströndin :D Mig langar að vera þarna núna :/



» 4 hafa sagt sína skoðun

26.07.2006 22:14:50 / johanna

Frí..

Tíminn flýgur og sumarið er meira en hálfnað. Ég er ekki búin að gera neitt þetta sumar. Hef ekki farið út fyrir bæjarmörkin heldur bara verið mest að vinna sem er ágæt þar sem ég eyði svo miklu verð ég að vera dugleg að vinna :S Ég hef unnið alltaf annan daginn ef ekki báða um helgar þannig að ekki hef ég tími til að fara neitt þá :/ En svona er þetta bara, bráðum fer ég út :D Get ekki beðið eftir að komast í sól og slappa af áður en skólinn byrjar. Veðrið var reyndar alveg yndislegt miðvikudag til föstudags og var ég svo heppin að vera í fríi á miðvikudeginum. Lá úti á palli allan daginn og hafði það gott :D Um kvöldið var svo óvissupartý með vinnunni. Við öll sem erum að vinna í The Shoe Studio, Warehouse, Whistles, All Saints og Karen Millen vorum send uppí rútu og þar byrjaði stuðið. Við vorum keyrð hring eftir hring því enginn vissi hvert ferðinni var haldið. Við enduðum á einhverju grasi þar sem farið var í nokkra hópleiki :D Eftir það fórum við í húsdýragarðinn og fengum grillaðan mat. DJ hélt uppi stuðinu og Helga Braga kom og sagði nokkra brandara. Áfengi var dælt í liðið og mikið dansað og mikið fjör.

Annars var ég ein heima í seinustu viku sem var æðislegt. Stelpurnar komu til mín á þriðjudeginum sem var mjög gaman. Fór einnig með Hófí um daginn að horfa á Árni keppa í fótbolta með Þrótti. Þeir unnu því miður ekki enda að keppa við sterkt lið,Breiðablik. Hófí hélt því fram að þeir höfðu tapað því við komum en ég vona nú ekki :D Eftir leikinn skelltum við okkur í bíó á myndina The Break up sem var mjög fín.

Ég er ekki að nenna að blogga, það fylgir örugglega sumrinu. Þá er enginn heimalærdómur sem ég get hvílt mig frá með því að blogga. Þannig að ég ætla að láta þetta gott heita og blogga kannski þegar ég kem heim frá Mallorka og skólinn er byrjaður. Það eru líka allir einhvers staðar, Hófí er í Englandi (ég og Hlín öfundum hana ekkert smá!), Hlín fer að fara út líka og svo styttist í það að Ragnheiður yfirgefi okkur í ár :( Veit ekki hvað ég á eftir að gera :S

En þetta líkar mér ;)


» 4 hafa sagt sína skoðun

09.07.2006 21:48:50 / johanna

Úrslitaleikurinn..

Ég er sko ekki sátt!

Frakkarnir áttu að vinna þetta.

Hvað var Zidane að spá??

Ég man svo eftir þegar ég var á leiknum Ísland – Frakkland þegar Frakkar voru ný orðnir heimsmeistarar ’98 en jæja...


» 3 hafa sagt sína skoðun

26.06.2006 22:31:39 / johanna

HM..

HM HM HM...HM er í hámarki og allir að tala um HM, að minnsta kosti á þessu heimili. Ef það er kveikt á sjónvarpi þá er stillt á Sýn og setið límt við skjáinn. Þýskaland, Argentína, England, Portúgal, Ítalía og nú áðan Úkraína komin í 8. liða úrslit. Til að fullnægja HM þörfinni er einnig pöntuð pítsa og þá kemur ekki annað til greina en HM tilboð sem Dominos stendur fyrir þessa dagana. Ég get nú ekki sagt að ég hafi jafn mikinn áhuga á HM og strákarnir á þessu heimili en finnst ágætist skemmtun að horfa á skemmtilegan leik, sérstaklega ef England er að keppa en þeir eru mínir menn. Stjörnutorg hefur komið upp sjónvarpi þar sem sýnt eru leikir dagsins og flykkjast þangað fólk til að fylgjast með gangi mála. Oft frekar erfitt að fá sæti með góða sýn á sjónvarpið.

En nóg um HM. Seinustu dagar hafa einkennist af vinnu. Er að vinna í The Shoe Studio alla daga nema sunnudaga oftast frá tíu til sjö. Dagarnir hafa verið fljótir að líða þar sem það er alltaf svo gaman í vinnunni. Gott að geta bara verið inni þegar veðrið leikur mann grátt. Reyndar kom gott veður um daginn en við Lína (sem er að vinna með mér) létum það ekki á okkur fá að vinna inni og skiptumst á að fara út og sóla okkur. Enda ekkert að gera í kringlunni þegar úti er gott veður.

17. júní var um daginn og það er alltaf skemmtilegur dagur. Fór í afmælisveislu og eyddi restinni af deginum niðrí bæ í góðra vinahóp. Jónsmessunótt var líka seinasta föstudag og þar sem ég er alltaf svo menningarleg hitti ég Hlín niðrí Laugardal og ætluðum við að koma Hófí á óvart og hvetja hana áfram í hlaupinu sem hún tók þátt í. En þar sem við vorum ekki með hlaupaleiðina á hreinu sáum við hana ekki og loks þegar við fundum endastaðinn voru flestir komnir í mark nema nokkrir þannig að ætlunarverk okkar náðist ekki alveg þar. Við fórum bara í Húsdýra- og fjölskyldugarðinn en sáum að til að fíla sig þar væri hentugra að eiga börn eða eitthvað álíka. Ekki alveg okkar markhópur. Við létum það þó ekki á okkur fá og settumst niður og fengum okkur heitt kakó og spjölluðum. Um helgina var ég í fríi en gerði þó ekki mikið þar sem veikleiki var í mannskapnum en mætti samt fersk í vinnuna í morgun.

Ég hlakka til að fá útborgað, hef eytt alltof miklu í skó. Svo koma útsölur og þá á ég eftir að eyða ennþá meira. Ég efast um að ég eigi pening þegar ég byrja í skólanum. Já skólinn byrjar 21. ágúst og verð ég í 4-X. Bekkjarlistarnir eru sem sagt komnir á netið og eins og ég reiknaði með þá er ég í algjörum strákabekk! Við erum 4 stelpurnar og erum 4 krakkar úr 3-R. Þannig það verður fróðlegt að sjá hvernig veturinn leggst í mig. Ég vissi nú samt að ég yrði í strákabekk þar sem stelpur eiga ekki tilhneigingu til að velja eðlisfræðibraut og þýsku en það gerði ég. Jæja ætla að fara að horfa á imbann og endilega komið í skóbúðina og heilsið uppá mig.

Án efa flottasti maður í heimi, er hægt að vera flottari?


» 6 hafa sagt sína skoðun

11.06.2006 19:09:21 / johanna

Vinna..

Jæja þá er ég loksins komin í frí í einn dag, ekki að vinna ;) Þessi vika er búin að vera mjög upptekin. Seinasta laugardag var ég að vinna til 6 og brunaði svo heim og svo aftur í afmæli til Hlínar ;) Hélt ég væri orðin allt of sein en þá var ég bara fyrst :D Ég var hjá henni fram á nótt ásamt nokkrum stelpum, mjög gaman :D Á sunnudeginu vaknaði ég svo snemma og fór uppí sumarbústað til frænku minnar og var hjá henni um daginn, fór í pottinn og svona ;) Um kvöldið var svo brunað í bæinn og ég fór til Kristínar. Á mánudaginn var annar í hvítasunnu og þá fór ég með Maríu í bíó á Rauðhettu, hef sjaldan farið á eins leiðinlega mynd :/ Eftir það fór ég svo í Smáralindina og svo kom Ragnheiður til mín. Vó skemmtileg upptalning eða þannig :’D En allavega hef ekki frá miklu að segja, hef bara verið að vinna alla daga núna frá tíu til svona sjö. En það hefur ekki verið leiðinlegt, þetta er svo skemmtileg vinna, ef það eru engir í búðinni þá erum við bara að máta skó eða eitthvað :P Það er hættulegt að vinna í kringlunni ég eyði of miklum pening :S En já þetta er komið nóg ég efast um að það verði mörg blogg í sumar, miklu skemmtilegra að gera eitthvað annað en að vera í tölvunni svo er ég líka svo mikið að vinna ;)

Mig langar til útlanda núna!

 




» 19 hafa sagt sína skoðun

01.06.2006 11:26:09 / johanna

Afmæli..

Hún á afmæli í dag
Hún á afmæli í dag
Hún á afmæli hún Hlín
Hún á afmæli í dag :D

Rétt er það, fyrir 17 árum fæddist þessi æðislega vinkona mín hún Hlín ;**
Enn og aftur til hamingju með afmælið og eigðu góðan dag og við sjáumst á laugardaginn ;);*




» 1 hafa sagt sína skoðun

31.05.2006 19:01:16 / johanna

Vinna...

Seinasta miðvikudag náði ég í einkunnirnar mínar og var ég bara mjög ánægð með þær. En ég var þó ekki lengi þar sem ég var að byrja að vinna :D Já ótrúlegt en satt þá er ég komin með vinnu ;) Hafði farið í atvinnuviðtal á mánudeginum og byrjaði á miðvikudeginum klukkan eitt. Sem sagt komin með vinnu í The Shoe Studio sem er skóbúð í kringlunni ef einhverjir voru að velta því fyrir sér :D Mjög ánægð með að vera komin með vinnu, þar sem þetta er líka svo flott skóbúð :D það er nú ekki verra :D

Seinasta fimmtudag var Uppstigningardagur. Fór með Ragnheiði í Smáralindina og svo seinna um kvöldið skelltum við okkur í bíó á myndina Failure to Lunch. Ágæt mynd þar á ferð, svona rómantísk gamanmynd.

Á föstudeginum fór ég til Hófí og við vorum svo duglegar að labba í Laugardagslaugina og liggja í heitapottinum ;). Eftir sundið fórum við svo á Subway og Hófí fór að vinna og gerði handa mér ís :P

Á laugardeginum var ég bara að vinna og þannig skemmtileg heit ;) Undanfarna daga hef ég verið mikill letingi. Legið fyrir framan sjónvarpið eða eitthvað á þá leið. Á morgun fer ég að vinna sem er líka svolítið merkisdagur 1. júní, en það kemur meira um hann á morgun ;)

Best að fara að gera sig til, er loksins að fara á The DaVinci Code. 


» 6 hafa sagt sína skoðun

22.05.2006 19:28:06 / johanna

Sumarfrí...

 

 



SUMARFRÍ

Loksins eru prófin búin og sumarfríið runnið upp. Prófin kláruðust á miðvikudaginn og frá þeirri stund hef ég verið yndislega ánægð, enginn lærdómur meira. MS ballið var um kvöldið en þar sem þetta var lokað ball og ég fékk ekki miða, fór ég ekki .:/ En þá var bara enn meiri ástæða til að skemmta sér betur á Verzlóballinu sem ég líka gerði. Ég var fyrir utan Hlégarð um ellefuleytið og byrjaði á því að sniglast eitthvað þar í kringum til að fela miða :’D Ég hafði nefnilega keypt miða fyrir Tinnu og hún var enn ekki búin að ná í hann þannig að ég varð bara að fela miðann einhvers staðar þarna í kring :D En það gekk ágætlega og hún fann hann :D Þegar inn á ballið var komið var svo dansað og dansað. Ótrúlega skemmtilegt ball en fámennt. :/

Svo var náttúrlega Eurovision fyrr um kvöldið þar sem Silvía Nótt keppti fyrir Íslands hönd eins og flestir vita. Ég get svo svarið það hvað þetta var leiðinleg keppni. Silvía söng með nefinu en “showið” var flott. En þegar kom í ljós hvaða lönd kæmust áfram var ég sko ekki ánægð. Þetta voru bara einhverjar austantjalds þjóðir sem voru með hörmuleg lög. Þetta er ekkert lengur söngvakeppni, þetta er bara stjórnmálakjaftæði. Lagið sem mér fannst flottast komst ekki einu sinni áfram, sem var framlag Belgíu. Ég vonaði innilega að aðalkeppnin yrði eitthvað betri.

Ég var farin að hlakka til laugardagsins þegar aðalkeppnin loks rann upp. Þegar klukkan sló 7 var ég í matarboði og horfði þar á keppnina. Hún var svona þokkaleg, ekki alveg eins og ég vildi en loksins vann Finnland eftir mörg ár með misheppnuð lög. Framlag Danmerkur og Úkraínu fannst mér vera best og einnig Rússlands þar sem söngvarinn var ótrúlega HOT :D En þá er keppnin búin og gaman verður að sjá hvað gerist á næsta ári. Á Leoncie eftir að fara? :D

Ég var að skoða áðan hvernig henni Silvíu gekk í undankeppninni en hún lenti í 13. sæti þar af 23. Sem er bara nokkuð gott, hún fékk alveg heil 62 stig ;) Hún fékk 7 stig mest sem hún fékk frá Norðurlöndunum. Svo var hún líka að fá stig frá Monaco, Portúgal, Spáni og fleirum.

En nóg um þessa keppni. Á laugardaginn gerðist ég svo skrautleg að fara í kolakortið. Já það var ekki bara vegna þess hvað mig langaði að skoða skrautlegt úrval þar heldur var stefnan tekin á ákveðinn bás. Það vildi nefnilega svo til að Ragnheiður og Kristín voru með bás til að selja fötin sín :D Góð leið ef þú ert orðin leið á fötunum þínum og ætlar að henda þeim, því ekki þá bara að fara í Kolaportið og fá pening fyrir það sem þú myndir hvort eð er henda. Ég var hjá þeim í einn tíma en hvarf svo af braut og gæti ekki hugsað mér að vera þarna allar helgar.

Dagurinn í gær var ágætur. Byrjaði snemma á því að horfa á hann Arnór keppa til úrslita í fótboltaleik í Kaplakrika sem endaði reyndar að þeir töpuðu. Svo fór ég einnig upp í Laugarnessskóla þar sem skólinn er 70 ára og opið hús. Þar fann ég áhugavert ljóð sem hún Ragnheiður samdi í 4. bekk :D Það hljómaði einhvern eigin á þennan veg.

Ég vildi að ég væri krús
sem ætti heima í hús
þar væri mús
og líka lús

Ótrúlega krúttlegt :D Eftir það fór ég svo yfir götuna í vöflur til ömmu og afa.

Á miðvikudaginn næ ég svo í einkunnirnar og fer svo að eitthvað að stússast. En allavega sumarið er komið og allir svo glaðir. Mér finnst samt hálfleiðinlegt að vera búin í skólanum, ég á allavega pottþétt eftir að sakna þess að fara í skólann, kannski ekki að læra en allt hitt. ;) Það er nú ekki mikið á dagskrá þetta sumar. Bara slappa af og ferðast og skemmta sér. Fer til Mallorca í ágúst. Það styttist óðum í að Ragnheiður yfirgefi okkur. Vá hvað það verður gaman hjá henni í Frakklandi og hún verður í heilt ár, ég á sko eftir að sakna hennar :(. En ég læt þetta duga í bili og fer aftur í matarboðið sem foreldrar mínir eru að halda.


» 10 hafa sagt sína skoðun

12.05.2006 17:13:03 / johanna

Próf próf próf...

Fimm búin og tvö eftir, íslenskan og enskan. Þessi próf eru búin að vera ótrúlega lengi að líða en ég fer nú að sjá fyrir endann á þeim í næstu viku. Sumarið er komið, já það er sko hægt að segja það. Veðrið er búið að vera frábært og ég hef nýtt það eins vel og ég get, legið úti á palli og farið í sund. Lærdómurinn hefur legið aðeins í skugganum af góða veðrinu og ég hef ekki verið alveg jafn dugleg eins og ég ætti að vera en prófin hafa gegnið ágætlega nema kannski danskan enda EKKI mitt uppáhaldsfag. Fyrir dönskuprófið fór ég með Kristínu og Ragnheiði uppá bókasafn Kópavogs og ætlaði að vera voða dugleg að læra. Það fór hins vegar þannig að ég opnaði ekki bókina og sama segir eiginlega um stelpurnar. Við vorum bara að kjafta og kjafta enda fátt sem stoppar okkur þegar við komum saman. Fólk var farið að færa sig til að læra í frið, frá okkur :S Við sáum að þetta gengi ekki og fórum heim :D

Í dag fór ég í þýskupróf sem ég er bara mjög sátt með og fór svo heim. Ragnheiður kom og við skelltum okkur í sund þar sem voru nokkuð margir. Og núna sit ég hér í tölvunni. Í vikunni varð ég orðin uppiskroppa með síður til að skoða. Þar sem ég geri allt til að sleppa við byrja að læra og fer á netið og skoða síður um allt milli himins og jarðar. Merkilegt hvað það eru til margar síður um bara já allt og ekki neitt. Ég er einnig búin að vera dugleg að fylgjast með hvað er að gerast í sjónvarpinu þessa dagana og horfði á seinasta þáttinn í Project Runway sem sýndur er á RÚV. Þar var furðufugl sem vann sem heitir Jay og er hann eflaust að meika það, ótrúlega flott föt sem hann gerir. Svo er það annar þáttur sem ég horfði á um daginn og það er Beauty and the Geek. Það er sko þáttur til að hlægja yfir. Í þessum þætti eru saman komin ofur skvísur og algjörir nördar. Þau keppast um að vita meira um það sem hinn veit. Spurningar sem stelpurnar fá eru á þann veg: „Hvað er jörðin lengi að fara einn hring um sólina?“ ,og strákarnir fá, „Hvaða dýr einkennir tískumerkin eins og Lacoste og Ralph Lauren?“. Eitt par dettur út í hverjum þætti og eftir verður par sem fær einhverja peninga. Já gaman að horfa á þetta ef maður hefur ekkert að gera eins og í prófunum ;)

Eins og áður kom fram er ég búin í prófunum á miðvikudaginn og þá á að gera eitthvað mjög skemmtilegt. MS ballið er um kvöldið og er ég að vonast til að fá einhvern með mér. Langar rosalega mikið þar sem þetta er góð leið til að halda uppá að prófin séu búin. En svo er auðvitað Verzló ballið á fimmtudeginum og þangað ætla ég pottþétt að mæta. Ballið er í Mosó og einhverjum skemmtilegum stað sem ég man ekki núna. Sjáumst hress á fimmtudaginn og gangi ykkur vel í prófunum sem eru eftir ef einhver, eflaust margir komnir í sumarfrí.

 

 

 

 

 

 

 

» 3 hafa sagt sína skoðun

30.04.2006 20:28:10 / johanna

Boston..

Þá er skólaárið að líða undir lok. Aldrei aftur í 3-R :( Bara prófin eftir og svo kemur sumarið. Vá hvað þetta er búið að vera æðislegt skólaár, hefði aldrei getað trúað að menntaskóli væri svona skemmtilegur og mikið skemmtileg að gerast. Ég hlakka mikið til að koma aftur næsta ár og þá vonandi í 4 bekk ;)

Eins og áður þá er ég enn ekki komin með vinnu fyrir sumar og veit ég ekki alveg hvað ég á að gera. Ég nenni samt valla að gera eitthvað í þessum málum, mig langar helst að það sé bara hringt í mig og sagt hæ viltu koma og vinna hjá okkur :’D Kannski svolítið fjarlægt en það má láta sig dreyma :’D

Seinasta þriðjudag kom ég heim úr ótrúlega skemmtilegri ferð. Eins og kannski margir vita þá var ég í Boston og vá hvað það var gaman. Ætla ekki að fara að segja frá allri ferðinni enda tæki það margar blaðsíður, við gerðum svo mikið og ekkert stoppað. Veðrið hefði mátt vera betra en við fengum einn góðan dag sem var eins og að vera komin á Spán. Það helsta sem við gerðum var náttúrlega að skoða borgina og allt sem tengist því. Fórum einn dag í tívolíið Six Flags sem var ágæt nema að biðraðirnar í flest tækin var klukkutími! Við keyrðum líka til Rhode Island og skoðuðum millarahverfið. Fórum inní eitt húsið sem The Vanderbilts (með ríkustu fjölskyldum Bandaríkjanna á 19. öldinni) notuðu sem sumarhús og er kallað The Breakers. Og vá vá vá ég get ekki lýst hvað þetta var flott. Það væri ekki amarlegt að búa í svona húsi, ég er svo að fíla þetta tímabil ef ég hefði verið svona rík :D Það voru 70 herbergi í húsinu og eldhúsið var á nokkrum hæðum. Það þurfti sér herbergi fyrir postulínið og allt það :D Allt var út gulli og marmara og bara því besta. Úti var sérhús sem var í fullri stærð, eins og bara hús hér á Íslandi, sem var bara fyrir krakkana til að leika sér í. Þar inni var mini-eldavél og mini-píanó og fleira :D Svo má ekki sleppa að segja frá því sem mér þótti mest spennandi en það var að versla :D Já það var eytt nokkrum klukkutímum í mollunum og held ég geti sagt að ég hafi verslað svolítið mikið. Já þetta var sem sagt mjög skemmtileg ferð og ég gæti vel hugsað mér að fara þangað aftur eða kannski í nám. Það væri nú ekki amarlegt að vera þarna í Harvard eða MIT sem er náttúrlega toppdraumur en til að komast í þá skóla þá þarftu ekki aðeins að vera súpergáfaður heldur þá kostar árið í Harvard fjórar milljónir. Pælið í því, maður er kannski í skólanum í svona 4-6 ár og þá er það bara komið uppí 16-24 milljónir bara fyrir að vera í skólanum :S Svo komast bara 4% inn í skólann sem sækja um, sem sagt bara 4 af hverjum 100 sem sækja um, bara 4!

Annað að frétta af mér er bara voða lítið, allir uppteknir við að læra undir prófin og lítið um að vera. Menntaskólaballið var á fimmtudaginn, ég fór reyndar ekki þar sem ég vissi um voða fáar manneskjur sem fóru, hef líka heyrt að það var ekkert gaman. Allir að byrja í prófunum og svona, það var voða skrítið að vera í skólanum þessa seinustu daga þar sem 5. og 6. bekkingar eru byrjaðir í prófum og hjá 4. bekk var peysufatadagurinn, soldið tómlegt.

Í gær náði ég í Ragnheiði og við borðuðum pizzu og leigðum A Little Trip To Heaven. Sem er bara skemmtileg mynd. Kom mér mjög á óvart. Það var ekki þessi týpíski íslenski bragur á henni þar sem öll fjölskyldan er brjáluð. Jæja læt þetta gott heita og gangi öllum vel í prófunum því ég efa að ég bloggi eitthvað meðan á prófum stendur. Fyrsta prófið er stærðfræði sem er skrítið því það hefur alltaf verið seinasta prófið mitt :/ Læt fylgja hérna nokkrar myndir frá Boston.

Ég og Arnór hjá stofnanda Harvard
Ég og María í hafnarbolta :D
Moi
Stórar byggingar
Arnór og María á leiðinni inní týpíska bíómynda rútu :'D:D
Þó nokkrir pokar komnir..Fleiri myndir koma bráðum

» 7 hafa sagt sína skoðun

16.04.2006 16:42:18 / johanna

Gleðilega páska

Gleðilega páska

Það er búið að vera alveg æðislegt að vera í páskafríi þessa viku, þótt það hafi komið tímabil sem mér leiddist smá. En á morgun legg ég af stað til Keflavíkur og fer uppí flugvél og lendi í Boston um klukkan fimm. Flugið tekur um 5 tíma og er ég búin að komast að því að Rumor has it verður sýnd á meðan flugi stendur, er reyndar búin að sjá hana en góð mynd sem gaman er að sjá aftur.

Páskafríið er búið að einkennast af að slappa af og hafa það gott. Kíkti á Hófí á föstudaginn sem var mjög gaman og fór með Hlín í Smáralindina í gær. Ekki beint gáfulegasta að fara að kíkja í búðir áður en maður er að fara til Boston þar sem ég á ekki marga aura en mér tókst að halda mér á mottunni og vera aðeins Hlín til halds og traust meðan hún eyddi úr peningabuddunni. Það var nú ekki margt um manninn í Smáralindinni eða á götum borgarinnar. Ætli flestir hafi ekki skellt sér út á land eða eitthvað í þá áttina. Annars er komin bara ferðahugur í stelpuna og hugsa ekki um annað. Er ekki enn komin með vinnu fyrir sumarið og er ég orðin frekar stressuð með það allt, mig langar ekkert sérlega að vera atvinnulaus í sumar þegar allir eru að vinna. Ætli ég endi ekki sem kassadama í Hagkaup eða eitthvað svoleiðis þótt það sé nú ekki alveg draumurinn, ef ég fæ það þá.

Jæja best að fara að pakka áður en ég fer í matarboðið. Annars veit ég aldrei hvað ég á að taka með mér og enda oft á því að taka allt of mikið með mér þannig að nýja dótið kemst ekki fyrir. Lenti allavega í því þegar ég var í Englandi síðast liðið sumar. Ég og Hlín með drullu þungan handfarangur og gátum valla komist áfram, þurftum að stoppa eftir hver 10 skref til að pústa. Allavega hafið það gott á klakanum meðan ég er að spóka mig um í Boston, veðurspáin er reyndar ekki góð en það verður bara að hafa það. Við sjáumst svo 25. apríl, lendi um 6 og ætla að reyna að vera mætt hress í skólann klukkan 8 :D

 

 




» 1 hafa sagt sína skoðun

05.04.2006 20:01:28 / johanna

Boston..

 

 

Ég hef sko fréttir að færa. Já eftir rúma viku verð ég á leiðinni til BANDARÍKJANNA nánar tiltekið Boston.:D:D:D Vá ég get ekki beðið eftir að komast til útlanda. Ég fer út annan í páskum og kem heim 25. apríl. Það er svo margt sem mig langar að gera þarna úti og efst á listanum er að VERSLA, ég á reyndar ekkert voða mikinn pening núna en það reddast vonandi :P Ég gisti á þessu hóteli sem er í eigu Hiltons, það er nú ekki amarlegt :D:D

 

 

Það er nú frekar langt síðan ég bloggaði seinast og er ekki enn búin að segja frá kosningavikunni sem var í skólanum í seinustu viku ;) En það var með skemmtilegustu vikum skólans. Þegar maður mætti á marmarann var strax byrjað að troða að manni nammi og gosi og bara öllu. Allir frambjóðendurnir að vonast til að maður setti kross við þeirra nafn. Sem var ágæt, maður þurfti ekkert að kaupa sér að borða heldur gat bara farið niðrá marmara og nælt sér í eitthvað. Ég var komin með svona aðeins hugmynd um hvern ég ætti að kjósa og kaus á fimmtudeginum en því miður komust bara fáir sem ég vildi í stjórn :S Ég hef greinilega ekki verið að kjósa réttu manneskjurnar enda þekkti ég ekkert frambjóðendurna og kaus bara eitthvað svona sem mér fannst.:D Kosningavikan endaði svo á kosningakvöldi sem ég komst því miður ekki á. Þar sem ég er alltaf svo dugleg að næla mér í allar flensur sem eru að ganga þá varð ég veik á föstudeginum og var veik fram á mánudag sem var ekki gaman. En ég er orðin hress núna og ætla að mæta á úrslitin í Gettu betur á morgun, er sem sagt komin með miða ;) Annars eru bara nokkrir dagar eftir af skólanum og svo komið páskafrí. Ég verð í extra löngu frí þar sem ég fer út sem er ágætt, ég á samt örugglega eftir að sakna þess að vera ekki í skólanum smá, maður er nú þarna næstum alltaf.

kv.Jóhanna Björk :D


» 7 hafa sagt sína skoðun

24.03.2006 15:42:04 / johanna

Litaballið..

Enn ein vika er liðin og styttist óðum í páskafríið. Margt skemmtilegt var gert í vikunni og stendur þá helst litaballið uppúr. Sem sagt á miðvikudaginn var litaball Verzló, sem þýðir að maður átti að klæðast einum lit og þá bara honum. Þar sem það var voða lítil mæting í bekknum á ballið ákváðum við stelpurnar að fara bara út að borða fyrst :D Við fórum á Caruso klukkan 8 og fengum þessa æðislegu máltíð. Ég fékk mér Calzone að vana, ekkert annað sem kom til greina :D Vorum við þar í tæpa þrjá tíma enda kom ekki til greina að vera mættur fyrst á ballið. Þegar klukkan var að verða 11 ákváðum við bara að fara, enda ekki endalaust hægt að vera á veitingarstaðnum. Við löbbuðum sem sagt niður á Pravda í ísköldu veðri og ég á háhælum skóm og kjólinn flagsandi út um allt og er ég ekki enn búin að jafna mig í tánum eftir skóna :S Ragnheiður beilaði á ballið og sagðist vera orðin veik og með háan hita, hvaða afsökun er það? Nei ég segi svona en á ballinu var mjög gaman. Skemmtilegt og sætt fólk og góð tónlist en því miður er bara eitt skólaball eftir af þessari önn :( En það var bara mjög gaman á þessu balli.

Á fimmtudaginn var svo Gettu Betur. Í hádeginu í skólanum mætti ég á klappliðsfund til að geta fengið sæti í úrslitunum sem var ágæt. En um kvöldið mætti ég á undanúrslitin sem voru á milli Verzló og Borgó. Ég var sein að vanda og bað stelpurnar að taka frá fyrir mig sæti og helst þá betri sæti en seinast þannig að ég myndi nú ekki sjást í sjónvarpinu! Þegar ég kom var ég glöð yfir að sjá að stelpurnar voru búnar að fá sér sæti til hliðar þannig að það gæti ekki verið að ég kæmi í sjónvarpinu. En annað var nú raunin! Ég kom í sjónvarpinu því miður. Ég efast um að ég eigi eftir að vinna í sjónvarpi, mér er ekki vel við myndavélar, allavega ekki núna :D Verzló vann með yfirburðum 25-18. Enda ekkert skrítið, þeir vita allt þessir strákar, ótrúlega gáfaðir.

Skólinn í dag var stuttur og ég beið spennt eftir að komast heim og fara að sofa, frekar þreytt eitthvað eftir þessa viku. Ekki veit ég hvað á að gera í kvöld. Helst langar mig að fara í eitthvað partý, ef einhver veit um eitthvað ;) Allir eru eitthvað voða uppteknir þessa helgi. Hlín er að fara í óvissuferð, Hófí að vinna og Ragnheiður upp í sumarbústað þannig að ætli þessi helgi verði ekki voða róleg.

Ég sá líka Casanova núna nýlega og mæli ég með þessari mynd. Hún er æðisleg og vá hann er svo sætur Heath Ledger. Ætli maður skelli sér ekki bara í bíó um helgina, margar myndir sem mig langar að sjá, ef einhver er til ;)

Var að horfa á nýja myndbandi með Silvíu Nótt áðan og lýst mér bara mjög vel á það :D Læt fylgja hérna með linkinn, annars getið þið líka horft á það í kastljósinu í kvöld ;)

 

 

 

http://youtube.com/watch?v=io9axbFBpk0

» 5 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 5